Brynhildur Bjartey með mömmu 8. ágúst á skírnardaginn sinn.
Árið byrjaði með fæðingu Brynhildar Bjarteyjar dóttur Aðalheiðar og Badda. Hún fæddist 1. janúar og var skírð 8. ágúst. Inga og Hreiðar eignuðust svo annað barnabarn okkar á árinu sem fæddist 11. nóvember. Hún var skírð þann 29. nóvember og heitir hún Edda. Þá eru barnabörnin orðin 8 og ekki von á fleirum í bráð (svo vitað sé).
Hilmir er stoltur með litlu langþráðu systur sína (sem að vísu átti að verða bróðir).
Afi “langi” látinn (1913-2009)
Afi fékk pláss á Grund um miðjan janúar en mjög er dregið af honum og hann treysti sér sjaldan að koma í fjölskylduveislur eftir að hann fluttist þangað. Þegar hann var spurður að því hvernig honum liði sagði hann gjarnan “mér líður eins og ég á skilið”. Hann dó svo 15. sept og er okkur öllum í fjölskyldunni harmdauði. Sjálfur var hann farinn að bíða og hafði sagt við hjúkrunarkonuna “Hvað þarf maður eiginlega að verða gamall til að fá að deyja hér?” Hann var svo jarðsuginn í kyrrþey og ekki var fenginn prestur til að tala við kistuna. Það var að hans ósk. Jarðarförin var svo ekki fyrr en 5 október þar sem beðið var eftir að Steinunn, Finnur og Anna Sólrún kæmu að utan. Eyrún fór með minningarorð og spilað var á orgel og fiðlu og lesin ljóð – þetta var falleg og vel viðeigandi athöfn.
Störf barna minna og tengdabarna
Eyrún var gerð að starfsmannastjóra ASÍ í janúar og Vignir að deildarstjóra hjá Actavis í október. Ragnheiður vann með skólanum í Body-Shop. Inga fékk vinnu hjá Rannsóknarnefnd Alþingis 6. janúar. En fór svo í barneignafrí í byrjun nóvember. Hreiðar hefur nóg að gera í lausamennsku við kvikmyndatöku fyrir RUV og Skjánum. Finnur vinnur áfram hjá Google og Hrefna lauk doktorsnámi sínu við Stanford University. Baddi vinnur enn hjá VBS og Aðalheiður hjá auglýsingastofunni Nonni og Manni. Steinunn útskrifaðist í vor með BA-próf í sálfræði en við vorum fjarri góðu gamni og flogin til Barcelona. Hún hélt úrskriftarveislu sem við því miður, misstum af. Í sumar vann hún svo á Þjónustu- miðstöð Laugardals og Háaleitis. Þar hefur hún unnið á sumrin frá 2006 en seinasta vetur vann hún þar líka með skólanum. Í ágúst fór hún til Árósa í framhaldsnám en kom sem betur fer heim í jólafrí. Einar er áfram í námi í HR í rekstrarverkfræði og stefnir á að ljúka næsta vor. Hann hefur unnið með hjá Orkustofnun.
Einar fylgdi Steinunni út og var í Árósum í eina viku.
------------------------------------------
Þorrablót hjá Kristínu Mjöll í janúar.
20. maí fór saumó í Brekkukot – engar myndir finnast frá þeirri för.
Saumaklúbbar hafa verið haldnir reglulega allt árið og hlakka ég alltaf mjög til þeirra. Ég á svo að halda næsta saumaklúbb í janúar. Þessi saumklúbbur hefur haldið hópinn í rúm 40 ár og geri aðrir saumaklúbbar betur!
Z-göngur
Enn stunda ég reglulega göngu (einu sinni í mánuði) með Stín-Stínu, Hildigunni og Siggu. Þetta er Z-gangan en við vorum sessunautar í 4. 5.og 6. Z í Menntó. Þær eru eins og fjallageitur og ég hef varla við þeim þó yngst sé.
Stín-Stín Hildigunnur og Sigga
Sumarbústaður Túnfótur í Ljósavatnshreppi.
Við vorum með Tómasi og Jonnu í sumarbústað í Ljósavatnshreppi 3. júli – 9. júlí
Kvöldmatur úti undir beru lofti.
Á Húsavík
Byggðasafn á Mánárbakka
Þetta er bústaður á vegum Kennarasambands Íslands. Þessa viku fórum við víða um nágrennið s.s. Akureyri, Húsavík, Ásbyrgi, Mývatn, Mánárbakka, Bárðardal, Aldeyjarfoss og skoðuðum altaristöflu í Þorgeirskirkju og Laxárvirkjun. Margrét Þór og synir heiðruðu okkur með nærveru sinni í einn sólarhring. Veðrið var frábært allan tímann.
----------------------------------
Jóhönnur í sumó hjá Heddý 14. júlí
Stín-Stín - Addý – Heddý - Steinunn. Á myndina vantar – Valgý - Birnu – Jóhönnu og Önnu.
Við höfum einnig borðað á veitingahúsum og svo var okkur boðið í hádegissúpu hjá Valgý 31. október. Við fórum þá líka í grenndarkönnun og skoðuðum Áskirkju og skoðuðum húsin við Vesturbrún og Laugarásveg. Steinunn var svo með snyrtivörukynningu að gönguferðinni lokinni.
Kirkjuglugginn er verk Valgerðar Bergsdóttur skólasystur okkar til margra ára.
---------------------------------
Finnur og fjölskylda komu í 5-6 vikna í heimsókn. Við vorum þeirrar ánægju aðnjótandi að hafa þau hér í Byggðarenda þann tíma. Þegar Finnur kemur til landsins er það til siðs að bjóða upp á pörusteik fyrir fjölskylduna.
Finnur sker steikina.
Vignir og Eyrún
Finnur afmæli 35 ára
Finnur hélt þessa fínu veislu í Byggðarenda.
4 ættliðir. Hrefna langamma, Ásdís amma, Hrefna mamma og börnin Bjarki og Anna
Hér er afi í næst seinustu heimsókn í Byggðarendann. Það var í afmælisveislu Finns 35 ára 29. júlí. Seinasta heimsókn hans var svo þegar Brynhildur Bjartey var skírð þann 8. ágúst.
Fjölskylduferð í Brekkukot í júlí 2009
Við Þórarinn og öll börn okkar, tengdabörn og barnabörn. Aðeins vantar Hreiðar, sem var að vinna og Eddu í maga Ingu.
Gömlu hjónin Anna og Þórarinn + 5 börn – 4 tengdabörn mætt – 7 barnabörn
Hrefna – Anna Sólrún – Finnur – Bjarki Freyr
Trivial Persuit spilað fram á nótt.
Verslunarmannahelgin 2009 – frábært veður.
Anna - Inga - Þór - Guðni - Ólöf
Um verslunarmannahelgina voru fjölskylda Tómasar, við Þórarinn með Önnu Sólrúnu, Inga ogHilmir og Badda fjölskylda í sumarbústöðunum báðum.
Arnhildur með pabba – verslunarmannahelgi.
-------------------------------------------------------------
Í Hruna í lok ágúst.
Það var mér sönn ánægja þegar fimm-mínurnar vildu leggja land undir fót og koma og spila hjá okkur hjónum í Hruna. Þórarinn sá um að við grenntumst ekki í þessari ferð. Veðrið var hryssingslegt og við hættum við ýmsa útivist sem við höfðum áformað en engu að síður fórum við að pakkhúsinu og gerðum góð innkaup. Á heimleiðinni komum við við í Rauðfeldargjá og að Hellnum þar sem við fengum fiskisúpu Fjöruhússins.
Í Fjöruhúsinu.
---------------------------------
Skólaheimsókn Önnu Sólrúnar
Finnur og Anna Sólrún komu til Íslands í október til að vera viðstödd jarðarför afa Eymundar. Anna Sólrún kom í heimsókn í Hofsstaðaskóla - ömmuskóla. Hún stóð sig vel og var allan skóladaginn í 1. bekk GG (kennari Gunnhildur Gísladóttir)
Nýr sumarbústaður Tomma og Jonnu
Í nóvember festu Tómas og Jonna kaup á nýjum sumarbústað og við keyptum þau út. Nýi sumarbústaðurinn er í landi Tjarnar við Syðri Reyki og er hann í beinni sjónlínu frá okkur. Við söknum að sjálfsögðu félagsskaparins en þar sem fjölskyldurnar eru orðnar svo fjölmennar var þörf á útrás.
Fimm-mínur spila í Byggðarenda
Fimm-mínur í spilavítinu. Á árinu telst mér til að spilað hafi verið 18 sinnum nú í desember. Ekki hirði ég um að taka fram hver á metið og verið oftast stjarna kvöldsins og heldur ekki hver hefur oftast verið fýlupúkinn!! Þessi kvöld eru okkur nauðsynleg upplyfting í dagsins önn og vonandi á spilaklúbburinn að vera við lýði í mörg ár enn.
Kalla og Bobba
Kalla vinkona mín kom þrisvar sinnum til Íslands á árinu. Hún kom í maí og aftur í ágúst þegar móðir hennar var jörðuð og svo kom hún seinast í nóvember og þá kom dóttir hennar Blómhvít, kölluð Bobba, með henni. Þær komu báðar í kvöldmat. Við buðum upp á fisk en Bobba borðaði bara meðlætið þar sem hún er grænmetisæta.
Varmárgellur
Varmárgellur halda hópinn og hittust nokkrum sinnum á árinu og fóru í sína árlegu aðventugöngu niður Skólavörðustíginn. Ekki vorum við heppnar með veður því að eiginlega var ekki hundi út sigandi. Við enduðum gönguna á Sólon á horni Ingólfsstrætis og Bankastræti og þar var borðaður girnilegur matur
Les-píur
Brynja býður upp á góða súpu.
Sólrún og Kristrún
Les-píur hittust nokkrum sinnum og ræddu þær bækur sem ákveðið hafði verið að lesa hverju sinn. Hjá Brynju var horft á videomynd af Fridu Kahlo og ætluðum við í leikhús að sjá leikritið Frida.. viva la vida. Ekki varð þó af því. Við erum staðráðnar í að láta þessa fundi ekki niður falla.
Kaupmannahöfn – París – Barcelona – Budapest
14. febrúar vetrarfrí í Hofsstaðaskóla og við flugum til Kaupmannahafnar og bjuggum á Hótel Astoria. Þar voru líka Anna Margrét og Guðni. Anna Margrét sýndi okkur Jernbanekroen þar sem leikin var lifandi músik, kráargestir sungu og andrúmsloftið var eins og á ekta bjórkrá – meira að segja loftið reykmettað og gestirnir sýnilega fastir kúnnar.
Guðni og Anna Margrét
Fyrsta maí fórum við Þórarinn til Parísar og vorum 3 nætur á Hótel Plaza Republique. Á torginu fyrir framan gluggann okkar var “búsáhaldabylting” engu síðri en á Austurvelli jafnt á nóttu sem degi. Ekki var ég alveg með á nótunum með þetta tilstand en skildi þó að tamil tígrar áttu hlut að máli !! Sem betur fer var góð hljóðeinangrun þannig að þetta truflaði ekki nætursvefn okkar. Þarna lifðum við í leti og vellystingum praktuglega, gengum á Signubökkum, heilsuðum upp á Monu Lisu, fórum á kaffihús og borðuðum á kvöldin á góðum veitingastöðum, ítölskum eða frönskum.
Í sumarfríinu flugum við til Barcelona og leigðum við okkur hús í Kateloníu á Spáni. Þar vorum við með íbúð í húsi uppi í fjöllunum. Þar höfðum við hund að heimilisvini og nokkrar hænur Það voru 4 íbúðir í húsinu sem voru leigðar ferðamönnum og sundlaug var á lóðinni. Hitinn þessa viku var vel þolanlegur.
Fjórða utanlandsferð okkar var til Búdapest –22.okt. - 26. okt Með Heimsferðum. Boðið var upp á útsýnisferð um borgina með hópnum en að öðru leyti vorum við á eigin vegum.
Þarna erum við niðri við Dóná (svo blá)
Gulli og Kristín Mjöll
Anna Sólrún er farin að missa tennur enda byrjuð í skóla
Aðventan
Á aðventunni hefur að venju verið mikið að gera. Við fimm-mínurnar höfðum jólaspilastund hjá Jóninnu og gáfum hver annarri gjafir – allar heppnar með jólagjafirnar sínar eins og ónefnt barn sagði einu sinni!! Við Þórarinn fórum í jólamat bæði í Hofsstaðaskóla og í Kvikmyndasafn. Einnig fórum við á tónleika Karlakórs Reykjavíkur í Hallgrímskirkju þar sem Guðni Tómasson er einn kórfélaga.
---------------------
Við mæðgur Eyrún og Inga föndruðum jólakort tvö kvöld og við Inga bökuðum vanilluhringi og piparkökur með aðstoð Margrétar og Hilmis. Líka bökuðum við kleinur en þá var Margrét því miður fjarri góðu gamni.
Skatan hjá Björk og Brandi á Þorláksmessu er ómissandi og pabbi fylgist sjálfsagt með okkur af himnum og glottir þegar við lyftum brennivínsstaupi.
Jól og áramót
Jólakveðja frá Kaliforníu
Á aðfangadagskvöld borðum við hamborgarahrygg og hnetusteik var líka á borðum. Þökk sé Önnu Margréti sem bjargaði hnetusteikinni með því að kaupa fyrir okkur ómissandi kastaníu- mauk í London þar sem hún er ófáanleg á Íslandi þetta árið. Einar sá um forréttinn sem var djúpsteiktur camenbert með rifsberjahlaupi.
Hjá okkur var Ingu fjölskylda og Steinunn og Einar.
Eftirréttur var "ris alamande" og nú fékk Einar möndluna (af því að Finnur var fjarri góðu gamni)
Eftir matinn voru jólapakkarnir gefnir og Hilmir las á merkimiðana.
Á jóladag héldum við þeim sið að borða saman í Byggðarenda, öll fjölskyldan (nema fjölskylda Finns í Kaliforníu – samtals 16 þetta árið).
Spilað var eftir matinn og verðlaunabikar afhentur .
Edda ákvað að fá sér kríublund þar sem hún var orðin þreytt á spilamennskunni!
Þórarinn afhenti farandbikarinn að loknum leik.
Á eftir spilamennskunni voru teknar fjölskyldumyndir af þeim fjölskyldum sem höfðu fjölgað sér á árinu !
Síðasta Z- ganga í ár, gengið var í Fossvogsdal, 29. desember.
Hildigunnur, Stín-Stín og Sigga.
Áramótin 2009-2010
Áramótunum fögnuðum við á Fögruhæð hjá Tómasi og Jonnu – húsið þeirra rúmar okkur ennþá.
Í boðinu voru 21 manns. Þar ber fyrst að telja húsráðendur Tómas og Jonnu. Herdís, Halli og synir þeirra Halldór og Hreiðar Ingi. Guðni og Ólöf og sonur þeirra Tómas Oddur. Eyrún og Vignir með dæturnar Ragnheiði og Margréti. Inga og Hreiðar með Hilmi og Eddu ( 7 vikna). Baddi kom með Arnhildi smá stund en mægurnar voru á meðan í Hafnarfirði. Þarna voru líka Óli Ársæls og Sirrý vinir Tómasar og Jonnu til margra ára.
Ólöf, Tómas Oddur og Þórarinn.
Hreiðar Þór, Inga Sigrún og Edda
Leikjastjórnendurnir í mannanafnaleik - Vignir og Eyrún
Edda átti marga aðdáendur.
Arnhildur Lilja leikur sér í garðhúsinu
Glæsilegar veitingar
Halldór, Hilmir og Margrét kanna birgðirnar
Hreiðar Ingi og Hilmir með hlífðargleraugu
Guðni og Ólöf
Systurnar Ragnheiður og Margrét
Halli og Herdís
Óli og Sirrý
Bræðurnir með spúsur sínar
Nú árið er liðið í aldanna skaut
og aldrei það kemur til baka,
nú gengin er sérhver þess gleði og þraut,
Eyjólfsboðið verður haldið hér í Byggðarenda. Á meðan Eyjólfur fóstri Þórarins lifði bauð hann okkur seinustu árin sín út að borða á veitingastað. Fjölskylda hans hefur haldið þeim sið að hittast í heimahúsi í kringum jól eða áramót. Sunnudaginn 3. janúar 2010 er áætlað að koma saman í Byggðarenda.
Skyldi næsta ár verða svona viðburðarríkt?
Þetta verður seinasti vetur minn í kennslu og ég kemst í klúbb fyrrverandi kennara Varmárskóla. Í viku í júní fer ég með starfsfólki Hofsstaðaskóla í til Alicante og Þórarinn kemur að loknum heimsóknum og við verðum þar í húsi sem við tókum á leigu í eina viku. Önnur áform eru ekki ljós en við vonumst eftir góðu veðri og heilsu allra vina og fjölskyldumeðlima á næsta ári.
Gleðilegt nýtt ár 2010!

.jpg)



















.jpg)



































.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
















